| (no subject) |
[Dec. 9th, 2004|09:15 pm] |
Núna ætla ég að blogga hér Þetta er miklu flottara. Líka hægt að hafa svona tengla við hliðina á
for you Darren (is Mr.D ok?)
this is my new blog. its much cooler and i can put in links. its all about the cool |
|
|
| (no subject) |
[Dec. 9th, 2004|06:52 pm] |
one down, three to go.
Ég rúllaði upp þessu prófi. Ég var í prófi í áfanga sem ber hið skelfilega og ógnvekjandi nafn heimspekileg forspjallsvísindi! Prófið var skítlétt, en áfanginn að sama skapi huuundleiðinlegur. Ég vona að ég hafi náð, ég ætla aldrei aftur að lesa heimspeki. Heimspeki er fyrir plebba.
Högni er farinn að hrynja úr rúminu sínu á gólfið... við settum púða á gólfið. Honum bregður samt alltaf og fer að háskæla, hvenær fara þau að fatta að klifra bara aftur upp í og leyfa manni að sofa áfram? Emikamilla veit það örugglega, hún á svo mörg börn! Plútóníumtönnin hans Högna vex og dafnar, ég held að hann fái kannski bara ekkert fleiri.. En það er allt í lagi, þessi er svo öflug. Ég hitti Möggu móðursystur áðan (hún er samt ekkert móðursystir mín, hún heitir þetta bara) sem sagði að maður mætti alveg borða plútóníum þó maður sé með barn í maganum. Hún á fullt af börnum svo hún ætti að vita þetta. Hún vildi líka endilega fá að sjá mynd af tönninni, ég finn hana bráðum.
Tölvan mín bilaði, eða... Ég missti ristaðbrauðsmola undir bil-takkann og ætlaði að vera ægilega sniðug og taka takkann af til að blása undan :S Það var ekki góð hugmynd. Það eru víst tvær smellufestingar undir biltakkanum, en ekki bara ein, eins og á öllum hinum tökkunum... Ég notaði alla mína krafta til að smella takkanum af. Það tókst, en ég tók óvart aðra smelluna með :s Núna er ekki hægt að gera bil á minni tölvu. Ég var að hugsa um að blogga (eins og vindurinn) úr þeirri tölvu og vera geðveikt artí. Svo hætti ég við.
Ég er búin að falda sjö gardínur í dag. Geri aðrir betur.
AJ-bloggar eins og vindurinn |
|
|
| (no subject) |
[Dec. 6th, 2004|02:00 pm] |
Er hægt að setja inn svona tengla hér til hliðar? Mér finnst það svo töff... Mig langar svo að vera töff bloggari. Þessi gaur er töff
|
|
|
| (no subject) |
[Dec. 6th, 2004|01:33 pm] |
Högni fór í sund um daginn. Hann á sundbol og fannst ótrúlega gaman að
busla. Hann hló og skríkti allan tímann. Hann fór samt ekki í kaf. Ekki
myndi ég vilja að mér væri stungið á kaf í fyrsta sinn sem ég færi í
sund... Hér er mynd af Högna í sundbolnum sínum sjáðu hvað hann er ánægður með þetta.
Högni Alvar er með eina tönn. Ég hef miklar áhyggjur af henni. Ég get
svo svarið það að hún er á einhvern hátt stökkbreytt. Ég vissi að ég
hefði ekki átt að borða allt þetta plútóníum á meðgöngunni! Allt er
gott í hófi, my ass. En tannbífan er (vægast sagt) mjög breið, alveg á
við eina og hálfa venjulega barnatönn og í henni er risastórt skarð.
Við héldum að hann væri að fá tvær tennur í einu og vorum ægilega
happý, en neeei. Þetta er ein bífa. Svo er hún skökk... Ég er farin að
sjá fram á gríðarstóra tannréttingareikninga í framtíðinni. Reyndar
sagði pabbi að barnatennurnar í mér hafi verið ægilega fínar, beinar og
flottar, svo kannski er þetta ekki vísbending um ástand
fullorðinstannanna. En tanngarðinum í mér hefur verið breytt all
svakalega í gegnum árin.
Sem minnir mig á það að ég þarf að fara að athuga með hann Tomma. Hann
fékk víst einhvern vírus í eyrað, grey kallinn, og er óvinnufær. Sem
kemur sér mjög illa fyrir mig, þar sem ég get ekki fyrir mitt litla líf
farið til annars tannlæknis. Tannlæknar eru nefnilega, amk flestir,
starfsstétt Satans. Það er svo einn og einn inn á milli sem gerir við
tennur af hreinni hugsjón, en eru ekki handbendi djöfulsins, og hann
Tommi er foringi þeirra. Ég sakna hans. Ég hringi alltaf reglulega til
að athuga með hann. En það er alveg kominn tími á að fara í tanntékk.
Það er reyndar ekki nema rétt rúmt ár síðan ég fór síðast, en ég er með
skrúfu í munninum, sem þarf endilega að fara að smíða tönn yfir. Þetta
er orðið ansi leiðingjarnt. Svo kom niður fimmti endajaxlinn um daginn!
Ég vissi ekki að endajaxlar gætu vaxið aftur. En þetta er greinilega
eins og með skottið á eðlum. Þó maður taki það af þá vex bara nýtt. En
ég fór sumsé í endajaxlatöku dauðans (ekki hjá Tomma, heldur einum af
sendisveinum hins vonda í neðra) fyrir ekki svo mörgum árum síðan. En
núna er kominn nýr, hægra megin í efri góm. Ég ætla að fara til Tomma
og biðja hann um að taka hann. Ætli ég geti ekki fengið einhverjar
fyrirbyggjandi pillur eða mixtúru, svo þetta gerist ekki aftur. Varla
þarf maður að fara reglulega í endajaxlatöku allt lífið, ég trúi því
ekki!
Pabbi minn er svo þróaður að hann fékk aldrei endajaxla.. Kannski eru
hans jaxlar að koma niður í gegnum mig. Ætli þetta séu kannski svona
draugaendajaxlar... hmmm. Mulder og Scully hvað?
Lára systir er mjög duglegur bloggari, ég vildi að ég væri líkari henni. Emikamilla er líka
mjög dugleg að blogga, en það hefur reyndar komið henni í koll, þar sem
hún er búin að eignast blogg-óvin. Ég veit ekki alveg afhverju, en Katrín punktur is
er víst mjög viðkvæm fyrir því að aðrir minnist á hana í sínum bloggum.
Samt var Kamilla ekkert að segja að hún væri leiðinleg eða feit eða
neitt. Eins gott að minnast ekki á hana Katrínu punktur is í blogginu
sínu maður.... Annars skil ég ekki alltaf allt sem Emikamilla skrifar.
Hún bloggar til dæmis mikið um bókmenntir og það skil ég ekki. Reyndar
var hún að gera grín að fólki sem fílar bara dostojevskí og Kafka og
horfir á mósaík (Bragi hvað). Mér finnst kafka ekkert skemmtilegur, en
kannski vantar mig bara þroska í að skilja hann. Hann er allavega
rosalega frægur og mikið vitnað í hann ef maður er í h-skóla (sem ég
er).
Nú ætla ég að taka láru systur og ofurkokkinn Emikamillu mér til fyrirmyndar og blogga sem aldrei fyrr.
AJ, bloggar eins og vindurinn
|
|
|
| Helvítis heimspeki |
[Nov. 11th, 2004|10:18 am] |
Óreglulegu sagnirnar eru fjórar, amk þær sem mest eru notaðar. Kennaranum duttu ekki fleiri í hug amk. Svo það fær enginn verðlaun að þessu sinni. Ég hef ekki hugmynd um hvað eru margar óreglulegar sagnir í íslensku, enda er mér alveg sama, ég er ekkert að læra íslensku.
Það er soldið skrítið að læra alveg nýtt tungumál, svona frá grunni. Mér fannst allataf eins og ég gæti einhvernvegin reddað mér nokkurn vegin á flestum stöðum, á flestum tungumálum... Tja eða svona þannig. Ég er t.d. eldklár í spænsku, kann bæði að segja pantalones og uno servesa por favor. Svo er hægt að sjóða þetta saman og segja uno pantalones por favor... Svo er tveir... hvað er það aftur... uno, dos, tres.. sko mig. Þetta er nú ekkert erfitt. Svo kann ég ensku, skandinavísku og er stúdent í þýsku! Þá er maður nú kominn með redd í meirihluta evrópu, er það ekki? Þetta er nú að mestum hluta allt eins... Ef maður kann eitt mál, er maður enga stund að læra hin ;)
En finnska... Það er nú meira hrognamálið. Það eru ofboðslega fá orð lík íslensku. Finnar eru líka soldið eins og íslendingar með að búa sér til nýyrði, vilja það frekar en að taka orðin beint úr enskunni. Tölva er tildæmis tietokone og sími er puhelin.. En það er bara skemmtilegt. Ég held að aðalvesenið sé að læra öll þessi nýju orð.. Málfræðin er ekkert svo flókin
Ég er búin að læra hvernig maður á að kaupa ber, en það gerir maður í lítratali, ekki eftir vigt. Svo ef mann langar í hamborgara, fer maður á Hesburger, en það er finnska útgáfan af makkdónalds og börger king. Hesburger er uppruninn í Tampere, og þar eru Hesburger staðir úti um allt.
Nú er ég í krísu/krýsu. Þegar maður veit ekki hvað maður ætlar að verða þegar maður verður stór er einhvernvegin eins og allt lífið sé í lausu lofti. En þegar maður veit ekki hvað maður ER akkúrat núna, þó maður sé alveg að verða stór, þá er maður eiginlega í frekar vondum málum, eða hvað?
Ég man vel eftir því, þegar ég var barn, svona 10 ára kannski, þá fannst mér allir sem voru með bílpróf vera orðnir fullorðnir. Þeir sem kunnu að keyra bíl voru hreinlega á grafarbakkanum, það var ekkert sem aðskildi þá frá gamalmennum með göngugrind og stómapoka. Ég er með bílpróf. Ég er meira að segja búin að vera með slíkt próf í nokkur ár. Ég er flutt að heiman, gerði það tiltölulega stuttu eftir að ég fékk prófskírteinið góða. Ég kláraði stúdentspróf og er byrjuð í H-skóla! Margir mun fullorðnari en ég hafa aldrei stigið fæti inn í slíka stofnun.
Hvað er það sem gerir mann fullorðinn? Er hægt að vera semi-fullorðinn?
Ég er komin í djúpa, heimspekilega sálarkrísu/-krýsu. Hver er Anna Jóna?
Hver er ég, er kannski frekar erfið spurning, en hvað gerir mig að mér? Viðhorf mitt, framkoma, athafnir...
Ég á t.d. engin sérstök áhugamál!! Er það ekki frekar glatað? Ég gæti, vegna þessarar fötlunar minnar, aldrei orðið fegurðardrottning. Þær hafa alltaf vel skilgreind áhugamál, hesta, börn o.s.frv. Ég á ekkert svoleiðis. Nema kannski fara á barinn... Það er varla áhugamál, er það?
Ég vil að lokum benda á að þessar heimspekilegu pælingar um sjálfa mig eru í boði heimspekilegra forspjallsvísinda sem er fag dauðans og kemur finnsku ekkert við. |
|
|
| (no subject) |
[Nov. 2nd, 2004|09:28 pm] |
Jæja, nú er kominn nóvember.. Marraskuu á finnsku ;) Ég slæ um mig á finnsku við hvert tækifæri sem gefst. Er alltaf að reyna að kenna Herði, það gengur nú eitthvað brösulega :s
Það hefur ekki enn verið farin vísindaferð, ég fleygði því fram í tíma um daginn að við hefðum samband við Heiðrúnu, eins og skólasystir mín hún Hildu Redda stakk upp á, og fengjum að smakka á t.d. finnskum vodka, en fékk ansi dræmar undirtektir! Það er greinilegt að það eru ekki allir jafn drykkfelldir og ég...
Högni er kominn með tönn, ég man ekki hvernig maður segir tönn á finnsku, í neðri góm. Svona nýjar tennur eru flugbeittar, ég er hundfegin að vera hætt með hann á túttunni. Ég þekki konu sem missti næstum geirvörtuna þegar barnið hennar beit hana í brjóstið. Ætli maður geti fengið einhverjar örorkubætur ef maður missir geirvörtuna? Kannski ekki örorkubætur, eru geirvörturnar tryggðar? hmmm það er spurning. Ég er í sannleika sagt hundfegin að vera hætt þessu túttuveseni, eins og það er yndislegt að kúra með svona krílum, þá er alveg nóg að tottast þetta í hálft ár. Hann var orðinn svo skynugur að hann var farinn að bregðast við öllum hávaða (og ekki hávaða)!
Vísindaleg rannsókn: A) geirvarta getur teygst 10 cm frá brjóstinu! B) það er andskoti sárt
Finnska er fyndnasta tungumál í heimi, bara svona fyrir þá sem ekki vissu ;) Svo er það ekkert svo erfitt, það eina sem er erfitt er að muna nýju orðin. Sem eru hvað... ÖLL hahahaha, en málfræðin er ekkert svo erfið.
Það eru að vísu 14 föll, en hvað eru nokkur föll á milli vina ???
Sá sem veit hvað eru margar óreglulegar sagnir í finnsku fær verðlaun (ok ekki alvöru verðlaun, en samt)!
Sá sem veit hvað eru margar óreglulegar sagnir í íslensku fær líka verðlaun! |
|
|
| (no subject) |
[Sep. 23rd, 2004|03:49 am] |
Finnskunemum er hvorki boðið í nýnemaferð né vísindaferðir. Við erum ekki með félag eða blað. Mér finnst það svindl... Hver vill ekki hressa finnskunema í fyllerí? Ég bara spyr...
Annars er eyrnabrotið gróið. Ég skellti bílhurðinni á eyrað á mér með þeim afleiðingum að það brotnaði. Dr.T segir reyndar að það sé ekki hægt, en hvað veit hún?? Ég var amk helaum í eyranu í margar vikur og núna er eins og þykkildi yfir brotinu. I´m telling you, það brotnaði!!
Svo um daginn skelltist (fauk) hornið á helvítis bílhurðinni í kjálkaliðamótin mín. Það var vont. Högna fannst það örugglega verra því mér brá svo að ég gargaði og skallaði hann... Það herðir hann bara að vera skallaður af mömmu sinni.
Það er ekkert smá glatað að lesa blogg sem ekki eru með kommenta-kerfi. Hvernig veit bloggarinn þá að einhver er að lesa (eða enginn)? Ég t.d. er einstaklega lélegur bloggari, en samt fæ ég eitt og eitt komment... Ef ég væri duglegri að blogga, ætli ég fengi þá fleiri komment? Það er spurning...
í dag er ég að læra litina á finnsku, litina og hvað flíkur heita. Það er skemmtilegt, í síðustu viku lærði ég hvernig maður á að kaupa stóran pakka af vasaklútum og tvö frímerki í sjoppu. Í Finnlandi kostar stór pakki af vasaklútum og tvö frímerki tvær evrur og fjörtíu sent. Hvað eru það margar krónur?
Finnland er mest kúl land í heimi. Þar er hægt að kaupa vasaklúta í sjoppum og allir eru alltaf í saunu og karókí að drekka vodka. |
|
|
| (no subject) |
[Sep. 6th, 2004|10:42 am] |
Þá er ég búin að fara í fyrsta tímann minn í háskólanum! Það var fínn tími, tveir þriðju af nemendunum mættir. Kannski afþví þetta er klukkan átta á mánudagsmorgnum. Gæti verið.
Annars var soldið súrrealískt að ganga í skólann í morgun. Það var soldið eins og allir í húsinu væru að fara í skólann. Það streymdi strollan frá húsinu og að skólanum. Það er svo stutt í skólann að kaffið mitt náði ekki einu sinni að kólna :D Það er munur frá því í fyrra... Þá var kaffið ekki bara orðið kalt þegar í skólann var komið, heldur var það yfirleitt barasta búið!
Fyrsti tími AJ var semsagt inngangur að bókmenntafræði. Mér líst hellings vel á þetta, það eina sem ég er smeik við er kennslubókin. En hún er á norsku. Tja, þegar ég fer að hugsa um það, þá veit ég ekki alveg hvað ég er að tauta yfir því. Allar hinar bækurnar mínar eru á finnsku! Það er amk séns að ég skilji eitthvað smá í norsku bókinni.
Við erum 3 í finnsku. Ég, stelpa í pilsi og strákur með skegg. Ég er ekki sú eina sem kann ekki bofs og ég held að við stöndum öll jafnfætis núna í byrjun. Svona nokkurn vegin amk.
Það er soldið skrítið að vera loksins að byrja á þessu. Búin að vera sveitt við þetta leiðinda stúdentspróf í tvö ár. Svo er það allt í einu bara búið! Og nú fæ ég að læra bara það sem mig langar til. Geggjað.
Er hægt að eyrna-brotna? |
|
|
| (no subject) |
[Aug. 27th, 2004|02:33 pm] |
Jæja, þá eru 10 dagar þar til ég byrja í skólanum. Ekki barnaskóla, ekki menntaskóla heldur H-skóla... Ég skráði mig í finnsku og er búin að borga skólagjöldin (sem heita víst innritunargjöld, en það getur ekki verið svona dýrt að innrita sig...) og búin að kaupa bækurnar! Svo það er víst of seint að hætta við ;)
Ég var að glugga í bækurnar og ég skil ekki eitt einasta orð. Jú, á foríðunni á einni þeirra stendur "kirja". Það þýðir bók. Svo veit ég ekki meir. Ég skoðaði vinnubók sem ég fékk og þar skil ég ekki einu sinni leiðbeiningarnar! Hvað þá meira...
Hverskonar fólk skráir sig í finnsku? Er það ekki aðallega fólk sem á rætur að rekja til finnlands? Fólk sem á kannski finnskan pabba og vill komast í samband við ættingja sína í Finnlandi? Eða hvað... Ætli það séu margir kjánar eins og ég sem skráðu sig bara.. afþví bara? Afþví það hljómar kúl að kunna finnsku... Vonandi.. Það er alltaf fúlt að vera lélegastur.
Vinkona mín er að fara í guðfræði. Hún er farin að ganga í mussum og sandölum, síðum pilsum og með skartgripi. Til þess að fitta inn í ímynd guðfræðinemans... Ég er í svolitlum vandræðum með ímynd finnskunemans. Ég er mikið búin að vera að spekúlera í þessu. Hver er ímynd finnskunemans? Ég er amk í stökustu vandræðum með þetta, ef einhver hefur upplýsingar, endilega let me know.
Stundum fer ég í bæinn með vagninn. Það er frábært að vera ekki ólétt! Ég þakka fyrir það í hvert skipti sem ég sé ólétta konu.. Að vera ekki ólétt. Úff... Ég þekki ekki margar sem eru sammála mér í þessu en ef ég þyrfti aldrei að vera ólétt meir, væri ég til í að eiga 10 börn.. Ég skal fæða þau og hafa þau á brjósti, vakna á nóttunni og allan pakkann. Þegar meðgangan er búin er þetta alltsaman down hill from there.
þetta er fyndið |
|
|
| (no subject) |
[Aug. 5th, 2004|11:19 am] |
|
Amma segir að ef skjaldkirtillinn er í ólagi, hafi það rosalega mikil áhrif á skapið... |
|
|
| (no subject) |
[Jul. 27th, 2004|11:35 am] |
|
Er enginn brjálaður yfir því hvað ég er kaldrifjuð og ill manneskja fyrir að gera grín að veikindum mannsins? Ohh, ég hélt að einhver yrði brjálaður.. Mér finnst reyndar ekkert fyndið að fá æxli... Bara fyndnar vísur :þ |
|
|
| (no subject) |
[Jul. 23rd, 2004|03:37 pm] |
Mér finnst þetta fyndið
Davíð vor þú sem ert á sjúkró helgist þín gallblaðra tilkomi þitt æxli verði þinn vilji eins í pólitík sem og í heilsu gef oss í dag daglegt brauð og losið þér oss við vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum þér sem vonda skuldunautnum, eigi leið þú oss í sjálfstæðisflokkinn heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen.
og þetta líka
Hann Davíð kvartaði sáran með æxli ofan við náran. Þeir tóku það burt hefðu átt að láta það kjurrt og leyfa því bara að klár'ann!
Þeir enn um fjölmiðla deila og hafa gert fjölmarga feila. En ljóst er með öðru þeir tóku burt blöðru en hefðu átt að taka burt heila!
Ekkert þeir voru að slóra og boltinn var sendur til Dóra. Þeir láta áttu kjurrt og reka hann burt því hann hagar sér rétt einsog hóra! |
|
|
| Jafnréttishnútur |
[Jul. 22nd, 2004|12:29 pm] |
Ok, gyða.. Point taken
Blog blog blog
Við erum að fara að flytja, eftir... Látum okkur nú sjá... hvað marga daga... 12 daga.
Afþví við erum orðin svo fullorðin, þá erum við að fara að flytja á HJÓNAgarðana! Það er soldið grown up, er það ekki? Svo fer ég í skólann og Hörður verður heima með Högna...
Jafnréttið í mér er alveg í hnút þessa dagana. Ég er farin að hlakka heilmikið til að fara í skólann, það er soldið challenge að byrja á því að læra glænýtt tungumál, alveg frá grunni... En, það sem ég fæ alltof oft að heyra þessa dagana er: "mikið ertu dugleg að fara í skóla" og "Bíddu, hvað ætlaru að gera við Högna?" Allir sem ég tala við, vita að drengurinn á tvo foreldra, bæði mömmu (ég) og pabba. Samt sem áður virðist það vera fyrirfram ákveðið að fyrst ég er að fara í skóla, hljóti barnið að verða bara úti einhversstaðar á meðan.
Það virðist ekki vera sjálfgefið að Hörður verði heimavinnandi.
Mér finnst ég ekkert duglegri að fara í skóla, en menn vinkvenna minna, sem hafa farið að vinna nokkrum vikum (ef það) eftir að hafa eignast börn.. Það hlýtur að vera erfitt fyrir þá líka.. En ég er viss um að þeir hafa aldrei fengið að heyra hvað þeir séu duglegir...
Ég fer í skóla og Hörður verður heimavinnandi til áramóta, svo fer hann að vinna hlutastarf, og ég held áfram í skólanum. Við þurfum að redda okkur dagmömmu eða annarskonar pössunarsystemi, sem er sveigjanleg og getur hjálpað okkur í þessu púsleríi okkar...
Það er auðvitað ekki hægt að ætlast til þess að þjóðfélagið í heild sinni verði jafnréttislega sinnað ef þegnar þjóðfélagsins (viiiiið) höfum enn sama fornaldarlega hugsunarhátt og ömmur okkar og afar, eða er það? Nú spyr sá sem ekki veit... |
|
|
| (no subject) |
[Jun. 15th, 2004|05:45 pm] |
Þeir sem ætla að skrifa komment eru vinsamlegast beðnir um að kvitta fyrir sig, með nafni. Takk
p.s. ALLIR eiga að kvitta fyrir sig ;) |
|
|
| (no subject) |
[Jun. 15th, 2004|02:03 pm] |
[ Error: Irreparable invalid markup ('<img [...] forward"">') in entry. Owner must fix manually. Raw contents below.] <img src="http://images.quizilla.com/M/madpiratejenny/1036308330_wardresult.jpg" border="0" alt=""Forward""><br>Forward |
|
|
| Ræktin |
[Jun. 9th, 2004|09:27 am] |
Jæja, þá er AJ að koma úr ræktinni! Jamm það er satt, ég hef gefið mig á vald líkamsdýrkunarinnar og keypti mér bæði kort og vatnsbrúsa í Heimsbekknum í Laugardal.
Það er hundleiðinlegt, en ég hreinlega verð að gera eitthvað í þessu, ég er eins og búðingur. Og ekki einu sinni góður búðingur eins og súkkulaði eða karamellu. Neeeeei, ég er eins og ógeðis sítrónu- eða vanillubúðingur..
Andrúmsloftið í Laugum er svitastorkið, en maður getur horft á popptíví á meðan maður hleypur, það er ágætis hugleiðsla út af fyrir sig.
Annars var stelpan ekkert of ánægð með mig held ég. Ég mætti og ætlaði að kaupa mér kort. Jú jú, það var lítið mál, en þá þurfti ég að kaupa lás á skápinn líka. Mér þótti nú helvíti skítt að vera að borga rúmar 40þúsund krónur og þurfa svo líka að kaupa lás líka... Ég leyfði skvísunni að heyra það smá og keypti svo lásdrusluna á 400 kr.
Svo ætlaði stelpan að taka af mér mynd.. Ég spurði hana til hvers, þá var lítið um svör. Ég sagði henni að ég kærði mig ekkert um að þau ættu mynd af mér í einhverjum gagnagrunni sem ég vissi ekkert til hvers væri notaður.. Þá fór hún í smá kleinu og babblaði eitthvað um öryggi og að það mætti ekki framselja kortin og eitthvað. En eins og samsæriskenningar mínar hafi ekki fengið byr undir báða vængi með andlitsmyndatökunni, þá skutust þær upp í geim þegar stelpugreyið sagði mér að "horfa í spegilinn", ég spurði hana til hvers og hún sagðist ætla að "skanna augað mitt"!! Þá var mér nú allri lokið og sagðist sko ekki ætla að láta skanna á mér augað til þess eins að geta hlaupið á staðnum einu sinni á dag, mér þætti þetta nú einum of. Hún sagði að ef ég léti ekki skanna á mér augað, þá kæmist ég ekki inn í tækjasalinn... Það tók smá stund, en á endanum lét ég hana skanna bölvað augað!
Ég er í vondum málum! Núna á Heimsbekkurinn í Laugardalnum kreditkortanúmerið mitt, kennitölu, heimilisfang, síma, nafn, andlitsmynd (ég var reyndar frekar fýld á henni) og skann af auganu!!! Það er ekkert smá sem hægt er að gera við þær upplýsingar!
Ef ég hverf, ef bíllinn minn springur eða ef ég keyri út í skurð á dularfullan hátt... þá vitiði hverjum það er að kenna...
ps. það er alveg hægt að keyra á dularfullan hátt |
|
|
| kbbanki |
[Jun. 7th, 2004|10:34 am] |
Þau hjá Kbbanka stíga ekki beint í vitið er það? Ég var búin að tína svarta kortinu mínu og pantaði þessvegna nýtt (það er ekki hægt að kaupa leikfimiskort nema eiga kreditkort). Þetta var á þriðjudaginn í síðustu viku. Ég hringdi á fimmtudag, og föstudag og svo þegar ég hringdi í dag, eru þau búin að gleyma mér. Það er eins og ég sé hreinlega bara horfin af yfirborði jarðar!
bankamaður: "uuu, það er ekki komið" AJ: "En ég pantaði það á þriðjudaginn í síðustu viku, mér var sagt að það yrði komið á fimmtudag, föstudag." bankamaður: "eee, það er ekki komið" AJ: "Helduru að það komi í dag?" bankamaður: "uuu, við fáum póst klukkan tvö" AJ: "Ókei, á ég að hringja þá?" bankamaður: "eee, já já. Þú getur reynt það"
Ég meina það, má hvaða idiot sem er vinna í banka eða hvað? Ætli það sé þannig að þeir sem sæki um í banka séu greindarvísitölumældir (er það orð?) og allir sem skora hærra en hitastigið er þann daginn, fá ekki vinnu?
Örugglega |
|
|
| Brjóst |
[Jun. 4th, 2004|10:07 am] |
Það er lítill kall sem hefur alveg ofboðslegan áhuga á brjóstunum á mér. Það mætti hreinlega kalla það þráhyggju. Brjóstin á mér eru, held ég, eiginlega það eina sem hann hugsar um!
Einu sinni var ég með lítil brjóst. Núna eru þau riiisa stór. Ef ég væri ekki með svona stóran maga myndi ég samt ekki sjá tærnar á mér, fyrir risabrjóstunum. Ég er meira að segja með brjóstaskoru...
Ég skil ekkert í því afhverju konur vilja endilega vera með stór brjóst! Nú er ég búin að prufa bæði og ég verð að segja: "Lítil brjóst rúla!" Nei í alvöru.. Og konur eru að flykkjast í stríðum straumum í erfiðar skurðaðgerðir til að láta stækka á sér brjóstin. Þær ættu bara að vera fegnar.
T.d. er ekki til í dæminu lengur að hlaupa upp eða niður stiga (ég geri það iðulega á leiðinni í og úr þvottahúsinu!) nema hreinlega að halda undir spenana! Það er ekki smart. Sem betur fer býr enginn sem ég þarf virkilega að heilla í húsinu mínu, svo ég held bara áfram að halda.
Ég keypti mér rosaflottan brjóstahaldara um daginn (ok, hann er forljótur afþví einhversstaðar, í brjóstalögunum, stendur að konur með börn á spena megi ekki eiga flott undirföt!) sem er alveg eins og Anna Kournikova á! Amk er mynd af henni á pakkanum.
Hefur Anna Kournikova einhverntíma unnið tennismót? Ég held ekki (Hörður sagði mér það). Hún er sumsé skítléleg, en er samt fræg! hmmm skrítið... Mér finnst hún ekkert sérstaklega sæt og ekki er hún með ofurtúttur eins og ég!
Einu sinni hélt ég að stórbrjóst og brjóstaskorur væru eftirsóknarverðar, en ekki lengur. Nú bara hlakka ég til þegar þau minnka aftur, vonandi verða þau bara ennþá minni en áður! þá verð ég svo létt á mér í stigahlaupinu. |
|
|
| (no subject) |
[May. 14th, 2004|09:35 pm] |
|
hmmm, ég er ömurlegur bloggari |
|
|
| navigation |
| [ |
viewing |
| |
most recent entries |
] |
| [ |
go |
| |
earlier |
] |
| |
|
|